26.6.2007 | 15:07
Munið miðvikudagstúrinn!
Laugardagstúrinn var fínn, en við Guðrún Helga mættum tvær í yndislegu veðri og hjóluðum út á Álftanes og enduðum í kaffi á Thorsplani.
Á morgun ætlum að hittast við Hafnarborg kl. 20.00 og hjóla já hvert?
Ef engin önnur er með tillögu þá legg ég til að við hjólum inn í Garðabæ og heim í gegnum Setbergið. Við byrjum á að fara út Herjólfsgötuna, framhjá Hrafnistu og þaðan yfir í Garðabæ. Síðan hjólum við út Strandveginn og þaðan að Stjörnuheimilinu - og síðan inn í Hafnarfjörð - framhjá Fjarðarkaupum - út í Setberg - meðfram Læknum og endum síðan í Hafnarborg.
Formaðurinn er úti - en við reynum auðvitað að gera hana stolta af okkur og mætum sem flestar.
Með bestu kveðju
Valgerður Aðalritari
Athugasemdir
Sælar konur,
mér líst mjög vel á þennan slóða. Mæti með bros á vör, nesti og nýja skó. Auðvitað verður að halda formanninum stoltum og halda uppi heiðri klúbbsins. Annars er ég með tillögu til að bæta mætingu kvenna. . . . . það er að hjóla framhjá húsum þeirra og vekja á okkur athygli með flauti, bjölluhringingum eða söng. Verið vissar, ef þær eru heima, þá mæta þær næst. Við sækjum þær heim.
Með bestu kveðju
Bryndís óbreytt hhk.
Bryndís (IP-tala skráð) 26.6.2007 kl. 21:47
Því miður kemst ég ekki í kvöld - er lasin.
Valgerður Halldórsdóttir, 27.6.2007 kl. 12:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.