Aftur miðvikudagur

 Kænan

Sælar konur

Ég undirrituð formaður HHK og Aðalritarinn Valgerður vorum einar í laugardagstúrnum. Við tókum höfnina með stæl og enduðum í lönsj á Kænunni. Fljótlega eftir við lögðum dömuhjólunum okkar fyrir utan staðinn klukkan tólf þá bókstaflega fylltist staðurinn af fjallmyndarlegum mönnum sem komu til að skoða okkur. Okkur var hins vegar bent á að margir hraustir menn fengju sér þarna mömmumat í hádeginu flesta daga vikunnar. Wink 

Í kvöld væri gaman að hitta fleiri hjólakonur og skora ég á allar þær sem eru á landinu að fjölmenna við Hafnarborg klukkan átta í kvöld. Kannski sýnum við ykkur höfnina og kallana. 

Besta kveðja,

Eiríksína, formaður HHK 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: svarta

Hlakka til að heyra hvað margar mættu og hvernig gekk!

svarta, 11.7.2007 kl. 15:15

2 Smámynd: Valgerður Halldórsdóttir

 Obbobb - oj! Algert leyndó  

Valgerður Halldórsdóttir, 11.7.2007 kl. 22:21

3 identicon

Hjartanlega velkomin heim Eiríksína og sömuleiðis þið allar, hjólreiðakonur, því auðvitað var þetta eina ástæðan fyrir því að við mættum ekki fleiri, við vorum (og erum) allar í sumarferðum hér og þar. Ekki rétt?

Erla í Garðabænum (IP-tala skráð) 12.7.2007 kl. 09:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband